snyrtipía
27.03.2007 16:56:32 / snyrtipia

Á krossgötum

Þá er maður búin að vera í átakinu bumban burt núna í nokkra daga og viti menn ég var búin að steingleyma því að ég væri í einhverju átaki..hehe. þannig að bumban er enn til staðar og er ekkert á leiðinni neitt burt!!! En samt sem áður ÆTLA ég í bikiní í sumar:)

Eins og þið vitið er ég komin með vaxpott heima og er að vaxa á fullu því lets face it hárugar konur eru ekki sexý..! Bara svo þið vitið:) Þið vitið númerið mitt ef þið eruð orðnar loðnar eins og apar:)

Já Egilstaðir....hmm hún Mæja mín er að vinna alveg á fullu til að koma mér þangað yfir þó svo ég sé ekki búin að taka endanlega ákvörðun...hún er meira að segja búin að redda mér vinnu og alles...þessi elska. Þetta er bara svo rosalega stórt skref og það þarf að hugsa svona hluti vel til hlítar áður en endanleg niðurstaða fæst...hehe ýkt spekingsleg:) En ég er mjööög spennt fyrir þessu og mig langar svo heitt að komast úr borginni...endalaust vesen hérna og stressið alveg að fara með mann. En svo var ég að hugsa um það um daginn...hvað ef ég fer og líkar geðveikt vel að vera þarna og svo eru kannski ZERO sætir strákar þarna og ég enda sem gömul piparjónka..!!!!!! Mér til mikils hryllings fattaði ég að það gæti alveg gerst..!!!

Verð að skoða allar hliðar mjööög vel....heheheh:)

Bergdís kannski verðandi sveitalubbi:)


» 6 hafa sagt sína skoðun

12.03.2007 11:01:37 / snyrtipia

1.dagur Átaksins..."bumban burt"

Jæja þá er skólinn loksins búin og maður komin í langdreymið frí! Hef samt ekkert ef mér að gera nema hanga heima og taka til og þvo þvott:) Ýkt gaman:) Er búin að vera heima í viku núna og er farið að leiðast það soldið....en er að leita mér að vinnu, nenni ekki að hanga svona og gera ekki neitt..

Er mikið að spá í að flytja allt mitt hafurtask til Egilstaða og hefja nýtt líf þar:) Hehe... er að spá í að fara til Mæju pæju og er að skoða það allt mög vel, vil ekki taka neina fljótfærnis ákvörðun en þetta er samt búið að blunda í mér í smá tíma. Ef ég fer fer ég í haust! Ég veit hvað þið eruð að hugsa núna..."ohh við eigum eftir að sakna þín svoooo mikið" en örvæntið ekki því þið getið alltaf komið og heimsótt mig þangað:)  Langar að komast burt úr Reykjavíkinni, það er svo mikið stress hérna og allir alltaf að flýta sér eitthvað, ég nenni ekki þessu veseni.

Ég er komin í átak...er að byrja í dag og gengur bara nokkuð vel enn sem komið er, ætla að labba og sækja Ölmu Rán í leikskólann:) Maður þarf víst að hreyfa sig er þaggi! Einn fastakúnni kom á barinn á laugardagskvöldið og heilsaði mér með bros á vör og sagði svo hátt og glaðlega...."ÞÚ HEFUR ÞYNGST"....og ég bara djí þænks:) En honum fannst mjööög skrýtið að ég væri ekki ánægð með það að hafa þyngst, sagði að það væri ekki í tísku að vera horaður í dag...en no hard feelings:) Ég og Halli (líka fastavinur á barnum) hlógum okkur máttlaus allt kvöldið af þessum dúdda..hahaha:) Það er svona Staupasteins menning á barnum mínum:)

Bergdís


» 7 hafa sagt sína skoðun

13.02.2007 17:20:25 / snyrtipia

Bless bless ritgerð

Jey ég er loksins búin með þessa andsk....ritgerð. Díses kræst hvað þetta tók langan tíma...jæks.

Ég sem sé skrifaði 30 bls lokaritgerð um förðun. Og skilaði henni í dag:) Ég hélt að ég gæti eitt eins og einni helgi í hana en NEI ég er búin að vera í margar vikur að gera hana og sum kvöld langt fram á nótt. En nú er ég búin að skila henni og ég er bara nokkuð ánægð með hana:) Fæ örugglega 10..hehe!!

Annars er bara allt fínt hérna megin við skjáinn... á bara 3 verkleg próf eftir og svo eru bara bóklegu í næstu viku. Svo er þetta búið:( Ég á eftir að kveðja þennan skóla með gleði en einnig miklum trega, maður er búin að kynnast fullt af æðislegum stelpum og vera með éim upp á hvern einasta dag í 8 tíma í heilt á, svo bara bless bless og ekkert meir:( En svona er lífið víst.

Ég er búin að taka ákvörðun og ætla ekki að fara á samning þegar skóla líkur. Ég ætla að fá mér góða vinnu og borga eitthvað af þessum yndislegu skuldum mínum! Ég fer líka vonandi í FB í haust og ætla að taka þær tvær annir og tek svo samninginn að þeim loknum. Nóg að gera á næstunni.

Bergdís (ekki Begga, þú skilur..hehe)


» 9 hafa sagt sína skoðun

07.02.2007 16:37:30 / snyrtipia

Miðvikudagur

Jæja, ég var nú bara heima fyrir hádegi í dag þar sem Alma Rán er með all svaðalega augnsýkingu. Ég fór nú eftir hádegi og tók hana Kötu mína í fóta Spa, henni til mikillar ánægju:) Það er alltaf svo gaman að fá Kötu upp í skóla því hún er alltaf svo ánægð með allt sem ég geri og það er alltaf gaman að geta dekrað við vinkonur sínar:)

Mig dreymdi soldið óhugnalegan draum í nótt... ég sem sagt var að borða pulsu sem var eitthvað eitruð því ég bólgnaði öll upp andlitinu og á fótunum, ég bólgnaði svo mikið upp í framan að það var eiginlega ekkert pláss fyrir tennurnar mínar og ég braut enda-jaxl. Ég fann alveg þegar hann brotnaði og mér var geðveikt illt, hann varð að einhverskonar dufti upp í mér!!! Frekar jakkí. Vona að þetta sé ekki fyrir einhverju illu!!!!!!!!!!

En allavega þá er ég að fá Vaxpott á næstunni þannig að þið kæru stúlkur getið komið til mín í vax...tek að vísu ekki að mér brasilískt strax, ætla aðeins að stúdera það fyrst:)  

Bergdís


» 9 hafa sagt sína skoðun

01.02.2007 17:33:56 / snyrtipia

Góðan daginn góðir hálsar!!!

Hér ætla ég að reyna að skrifa það nýjasta sem gerist í minni annars mjööög skemmtilegu tilveru, sérstaklega þar sem prófin nálgast og það eina sem kemst að hjá mér er lærdómur og vinna.

Annars er þessi skólaganga mín að lokum komin og ég get ekki beðið eftir að útskriftardagurinn renni upp, en hann kemur 3. mars. Ég er búin að finna geðveikan kjól og allt. Svo ætla ég að halda partý fyrir Spatzjúlurnar í bekknum mínum um kvöldið og þar verður miiikið drukkið því það er bannað að vera edrú í mínu partýi...hehe. Og að sjálfsögðu förum við í bæin með fínu húfurnar okkar og sýnum okkur aðeins í sparifötunum:)

Begga fína bína:) 


» 4 hafa sagt sína skoðun


Dagsetning
23. febrúar 2012
RSS tengill